| Hlynur Hauksson | ||
|
CV IS CV DK Tenglar Gamalt hlynur01@ru.is ![]() |
14.7.08
. 28. ára Hlynur Nú er ég orðinn 28. ára og aldrei verið hressari. Ég fékk afmælisgjöf frá sambýlismönnunum mínum í gær; svart lakkrísbindi svo ég geti verið eins töff og þeir og matreiðslubók tli að ég geti verið jafn flottur í eldhúsinu og þeir. Gaman hvað þeir hafa mikinn metnað fyrir því að ég líkist þeim. 3.7.08 . Kominn frá New York. Það var gaman. 18.6.08 . Things to do before... Ég var rétt í þessu að koma af úrslitaleik NBA deildarinnar þar sem Boston vann Lakers með 39 stigum. Ég er í vinnuferð hér í Boston, datt inn á að vera á sama tíma og leikurinn. Ég og Steini ákváðum að rölta fram hjá leikvanginum fyrir leik til að upplifa stemninguna, þá bauð okkur maður að kaupa 2 miða á 600 $ hvor. Þar sem það voru miklar líkur á að Boston myndi vinna skelltum við okkur á það, once in a lifetime leikur svo maður sér ekki eftir því. 12.5.08 . Hnjúkasel Núna er ég í lest á leið til Newcastle. Það auðveldar mikið 3 tíma lestarferð að hafa þráðlaust Internet! :) Ég geri ráð fyrir að margir vinna minna séu nýskriðnir í bælið eftir að hafa fagnað hvítasunnunni. 19.4.08 . Tölvufólk vs. Business fólk Rakst á þennan brandara í tölublaði Ský. Þetta er rosalega satt! :) Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er. Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. Og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. Og 60. vestlægrar lengdargráðu. Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn. Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ? Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp að þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína. Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun. Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það? Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök. 18.3.08 . Páskar Nú eru að koma páskar og ég ætla að slappa af og reyna að fara á skíði eða bretti. Er búinn að vinna í eitt og hálft ár í bankanum þar af í eitt ár sem verkefnastjóri, það eru blendnar tilfinningar, ég hef aldrei unni við sama starfið samfleytt í lengri tíma. Það sést á bloggleysi mínu undanfarið ár að þetta sé krefjandi starf, stundum hugsa ég að ég sé "to young for this shit". 3.3.08 . Græn vika Ég keypti mér Hulk blöð á bókamarkaðinum um helgina, ég labba í vinnuna því að nýi bíllinn minn er með læst bensínlok og í síðustu viku var einn af sambýlismönnum mínum búinn að láta græna ljósaperu í herbergið mitt... með þeim stuðningi og rökum að ég sé framsóknarmaður. Annars er ég veikur og er ekki skemmt, er að reyna að taka þetta á sálfræðinni og fara samt í vinnuna. |
|