Suður - Ameríka 2005
Ferðalag Kára og Ingu Hrundar
 

Sídast var vitad um Ingu og Kára í:
Reykjavík, Ísland

Eldri hlutar ferdasogu:
Argentína 1. hluti og Chile
Kens Tháttur norska
Argentína og Chile 2. hluti
Perú fyrir Inka Trail
Perú síðari hluti
Ekvador

Gestabók:
Skoda gestabók
Skrifa í gestabók
Get a FREE guestbook here!

Reykjavík, 09.06.2005 klukkan 15:23
Komin heim


Við komum heim á föstudaginn eftir smá stopp í París. Móttökunefnd var mætt á Keflavíkurflugvöll; Ingólfur bróðir Kára er kominn með bílpróf en Halldór pabbi hans var nú með í för til öryggis. Svo kom Kjartan frændi líka en hann var búinn að vera að telja niður dagana síðan við fórum höldum við. Það þurfti nú ekki flutningabíl en gott að þeir komu á station.
Mamma hans Kára sá svo um dýrindiskvöldmat fyrir fjölskyldurnar okkar um kvöldið.
Í París komumst við á helstu túristastaði. Við gistum rétt hjá Sacre Cæur og þurftum að punga út 34 evrum fyrir nóttina sem er náttúrulega okur á suður-amerískan mælikvarða sem við erum nú að venja okkur af. Svo löbbuðum við upp í Eiffel turninn (á platform nr. 2 til að spara okkur biðröðina) og tókum svo lyftuna upp í topp. Gengum líka upp í Sigurbogann (því lyftan var biluð, þeir voru nú ekkert að lækka verðið samt út af því), skoðuðum Notre Dame og borðuðum bagettu með camenbert og drukkum vín (ég sko, Kári er bara í bjórnum). Þess ber að geta að það er glatað að bíða eftir flugi á de Gaulle í París því ef maður aulast inn fyrir tékkinnið þá fer maður beint í hliðið sitt og þar er bara EINN VEITINGASTAÐUR og fríhöfn af minnstu gerð.
Einhverju tókst okkur (aðallega mér) að missa af í fréttunum. T.d. var enginn að segja okkur frá nýju mjólkurfernunum og svo vissi ég ekki að Britney Spears væri ólétt, hvað þá af trampolín æðinu. Svo kom þetta "Bagel House" í Kringlunni mér á óvart en það er víst búið að vera þarna í ár og við fórum bara út í janúar... Vissum af nýja Blaðinu og að Kylie Minogue er með krabbamein.
Við vorum í miklum pælingum um íbúðakaup en nú er nýjasta hugmyndin að reyna að gera Rauðarárstígsíbúðina bara betri, laga t.d. ofnana svo að gestum verði ekki kalt og fleira. Þá verður nefnilega auðveldara að safna fyrir næstu ferð en á 10 ára áætlun eru Víetnam & Kambódía, Ástralía og Suður-Afríka. Þurfum kannski ekki að vera alveg 4 mánuði í burtu þá samt (þrjár ferðir sko).
Kári verður að vinna á Gervigreindarsetri HR í sumar og ég verð landvörður í Landmannalaugum. Allir þangað heimsókn, helst á virkum dögum! Hægt verður að fá bílasímanúmerið mitt hjá Kára eða á talhólfinu mínu.
Við þökkum dyggum lesendum áhugann og það verður myndasýning einhverntímann. Við eigum samt eftir að flokka þessar þúsundir mynda og formleg myndakvöld verða nú sennilega fleiri en eitt svo að þau verði nú ekki of löng.

Skrifaði: Inga Hrund

 

Buenos Aires, 31.05.2005 klukkan 13:01
Seinasti dagurinn í Suður Ameríku


Jæja, síðasti dagurinn okkar í Suður Ameríku. Ætlum ekki að túristast neitt heldur hanga bara á netinu! Þurfum ad leggja af stad út á völl eftir ca 2 tíma.
Í gær fórum við að skoða Recoleta kirkjugarðinn þar sem Eva Peron liggur til dæmis. Það er ekkert gras í þessum kirkjugarði, öll leiðin eru í grafhýsum. Svo var fullt af köttum þarna. Fórum svo á rosa fínt kaffihús sem var með þurrar brownies.
Um kvöldið fórum við svo á tangósýningu en ég hafði einmitt heimtað að fara á svoleiðis. Var bara fínt. Sátum á borði með Lance frá Arizona og enduðum með að fara á pöbbarölt með honum. Fyrst örkuðum við yfir í annað hverfi og fórum inn á einhvern bar og fengum okkur 2 bjóra. Jakkafataklæddur maður á næsta borði heyrði okkur tala ensku og sagðist vera frá Ástralíu eða allavega bjó hann þar. Samt hafði hann oft komið til Íslands þegar hann var í hernum, en ég náði ekki alveg þeirri sögu. Kannski var hann bara Kani sem býr í Ástralíu. Sáum svo hann tala við þjóninn og okkur var boðinn annar umgangur. Þegar við ætluðum svo að borga fyrir það sem við drukkum fyrst hafði hann borgað fyrir það líka, jeij! Fyrst að við "græddum" þessa bjóra ákváðum við að splæsa í leigubíl á næsta stað. Lance langaði niður á höfn því þar væri svo næs útsýni. Sögðum leigubílstjóranum að við vildum fara á höfn númer 3 en þegar á staðinn var komið reyndist þetta vera gámasvæði og lítið um bari. Klukkan var nú hálfeitt aðfaranótt þriðjudags og við sögðum bílstjóranum bara að fara með okkur á stað þar sem hægt væri að drekka bjór. Hann fór þá með okkur á Kilkenny stað sem spilaði ekki írska tónlist og þar vorum við í svona klukkutíma í viðbót.
Vorum aðeins eftir okkur í morgun en ekkert sem ferð á Makkarann lagaði ekki. Þar er hægt að fá mat úr þremur mikilvægustu fæðuflokkunum: Næring, fita og gos.
Ég keypti líka einhverjar hálstöflur en það var ekki til strepsils og það sem ég keypti deyfir á manni munninn og tunguna. Ekkert smá weird. Virka efnið er hexiresorcinol. Ég veit ekki hvort ég ætla að fá mér meira af þessu samt.
Já næsti viðkomustaður er París. Þar munum við lepja dauðann úr skel í 2 daga og komum svo til Íslands seinnipartinn á föstudaginn.

Skrifaði: Inga Hrund

 

Buenos Aires, 29.05.2005 klukkan 15:14
Buenos Aires ... again!


Kvöldið sem við komum frá Galapagos fórum við út að borða með hópnum okkar. Vorum nú ekki með mikla matarlyst því miður, því þessi matur var innifalinn í ferðinni okkar. Svo hengum við heillengi á netinu á fína hótelinu okkar - að vinna upp tapaðan internet tíma sko...
Í gær, laugardag fórum við svo í smá heimsókn í útivistarbúðina og eyddum hellings pening þar. Það er ekki venjan að gefa afslætti í svona fixed priced búðum þannig að við spurðum hvort við mættum eiga límmiða sem voru í afgreiðsluborðinu. Það endaði þannig að "já þið megið eiga þá ef þið borgið 60 sent (US) fyrir stykkið". Djöfuls nánasir, eru ekki alveg að sjá hvernig á að halda viðskiptavinunum kátum.
Svo dröttuðumst við loksins niður í gamla bæinn. Fórum inn í San Fransisco kirkjuna sem er með fullt af gulli og dýrlingum inn í. Skoðuðum svo einhverja aðra kirkju að utan og litum hvort á annað: "Djöfull er leiðinlegt að skoða kirkjur maður, förum heim". Komum við í nærbuxnabúð og ég keypti mér nokkrar brækur, allar í XL (ekki misskilja plís, það eru allar hinar konurnar hérna sem eru litlar) !
Borðuðum á Pizza Hut, erum að njóta þess áður en við förum heim til Íslands og tímum ekki að borða á Pizza Hut. Gáfum svo betlarakonu afganginn okkar.
Svo fórum við heim á hótel að pakka niður. Höfðum fengið að fresta tjékkáti til kl.18 en farið okkar á flugvöllinn var kl.19. Við sturtuðum úr öllum pokunum okkar á gólfið og bjuggum til flokka: 1.Þarf ekki að nota fyrr en á Íslandi 2. Þarf að nota 3.Handfarangur 4.Dót sem skilja má eftir.
Það tókst sem betur fer að koma þessu öllu fyrir í 5 bakpokum (þurftum ekki að nota hrísgrjónapokann sem við eigum og eina tuðru sem við höfðum keypt). Þarna munaði mest um nýja 110 lítra bakpokann hans Kára. Ég hafði líka keypt mér dagpoka, (en við fórum bara út með einn dagpoka og tvo bakpoka), og setti í hann bækur til að hafa í handfarangrinum svo að þær myndu ekki auka á yfirvigtina. Vorum tilbúinn með þetta á mínútunni sex, þetta var sko full tveggja tíma vinna. Höfðum kveikt á MTV til að hlusta á tónlist en við "neyddumst" til að loka sjónvarpið inn í skáp því Kári var svo spenntur yfir Shakira þættinum sem var í gangi :)
Fengum svo að vigta dótið okkar og þetta var sirka 40 kg sem er akkúrat passlegt.
Svo fórum við út á götu til að reyna að gefa fátækum stöffið okkar t.d. Darwin bolinn minn sem fær ekki að fara aftur til Íslands og sitthvað fleira. Gáfum tveimur konum en börnin í kringum þau urðu alveg kolbrjáluð og eltu okkur hálfa götuna (ókei, allavega tvö). Svo gengum við aðeins meira um hverfið en fundum ekki fleiri fátæka í bili. Þegar við vorum að koma aftur að hótelinu komu krakkar að okkur að reyna að selja okkur nammi og ein sirka 8 ára stelpa reyndi að fara með hendina ofan í handtöskuna sem ég var með, guð má vita hvort það voru ekki hendur í vösunum líka, ég öskraði þjófur á hana og svo drifum við okkur til baka. Það sem ég var mest hrædd við þarna var strákur sem hjólaði framhjá okkur og glápti en hann var með trefil fyrir andlitinu og ég stimplaði hann strax sem glæpamann. Laun heimsins eru vanþakklæti.
Um kvöldið og nóttina flugum við sem sagt frá Quito (Ekv.) til Buenos Aires (Arg.) með millilendingu í Santiago (Chile). Við erum ekki mjög heppin með ferðaplönin okkar, ekki minnast á það... Okkur gekk illa að sofa í fyrra fluginu og enduðum með að horfa á myndina "I am David", mjög hjartnæm og svo glímdum við við barnaþrautirnar í inflight blaðinu og fundum í þeim villur.
Á flugvellinum í Santiago borðuðum við kleinuhringi (!) á Dunkin´ Donuts og lögðum okkur á vondum bekkjum. Svo fórum við í loftið 3 tímum síðar í Boeing 767. 10 mínútnum eftir flugtak byrjaði allt að hristast og skjálfa. Við lentum sem sagt í "turbulance" og það yfir fokking Andesfjöllunum. Þetta var alveg "er ég í öryggisbelti?" og maður fékk í magann bara við það þegar flugvélin "sökk" niður. Við vorum nú farin að segja að kannski ætti flugstjórinn bara að snúa við og einhverjir fyrir aftan okkur voru farnir að kveðja. Það eina sem kom í kallkerfinu fyrst var "munið öryggisbeltin", en það hafði aldrei verið slökkt á sætisbeltaljósinu. Eftir að það versta var yfirstaðið, kannski var þetta bara í 1-2 mínútur var okkur sagt að þetta hefði bara verið ókyrrð í lofti og vélin hefði þurft að lækka sig til að komast niður fyrir ókyrrðina. Svo var þetta í þokkalegu lagi og við fengum morgunmat og vídeó on demand.
Veit ekki hvað við gerum af viti hér í Buenos Aires en ég ætla að heimta að fara á tangosýningu. Við þyrftum samt að leggja okkur fyrst því við sváfum nær ekkert í nótt. Svo er helv. rigning hérna.

Skrifaði: Inga Hrund

 

Buenos Aires, 29.05.2005 klukkan 14:38
Landslög álagaeyja










PS. Ég er að skoða þessar myndir hérna og þær eru fáránlega dökkar, verri en þegar ég tók þær upphaflega til. Skjáirnir hérna eru frekar glataðir en ég vona að þær komi þokkalega út annars staðar því þetta er hálfhallærislegt hjá mér núna.
Annars bara, enjoy!

Skrifaði: Kári

 

Quito, 28.05.2005 klukkan 00:26
6 dagar!


Hurrðu! Þá er það bara búið!
Galapagosferðin var eins og vænta mátti gersamlega ólýsanleg, en þar sem ein mynd segir meira en þúsund orð þá segja líklega 3000 myndir meira en þrjár milljónir orða. Í ljósi þessa mun ég hefjast handa við að setja inn hinar og þessar myndir af hinum og þessum hlutum með næstu færslum. Á morgun get ég vonandi klárað að setja inn landslagsmyndir sem ég hef verið að rigga núna en landslag og gróðurfar er einmitt hið undarlegasta í eyjunum og ótrúlega fjölbreytt miðað við að stór hluti eyjanna er bert grjót.
Dýralífið hlýtur svo að fylgja í kjölfarið og svo þegar skipulag kemst á þetta allt hjá okkur og við getum valið almennilega úr góðar myndir þá setjum við líka inn myndir sem eru stærri en fingurbjörg.
Inga er búin að vera iðin við að skrifa dagbók um borð í bátnum þannig að einhver skipuleg ferðasaga gæti barasta haldið áfram að koma inn eftir að við komum heim, svona smám saman.
Planið er núna að þoka okkur heim á leið, smá torga- og kirkjuskoðun í Quito á morgun og svo næturflug til Buenos Aires. Þar dveljum við svo aftur 2 nætur áður en við yfirgefum álfuna.
Þetta styttist bara og styttist.

Skrifaði: Kári

 

Puerto Ayroa, 17.05.2005 klukkan 10:53
Galapagos !!!


Jæja, það varð þá aldrei að maður kæmist ekki á internetið í Galapagoseyjum. Þetta er reyndar eina bæjarstoppið okkar þannig að héðan í frá verðum við örugglega ekki á netinu fyrr en í lok ferðar. En fyrst við nennum ekki að ganga um og versla hérna í bænum er ekki úr vegi að minna aðeins á okkur og setja inn nokkrar myndir fyrir æsta lesendur.
Við erum allavegana búin að heimsækja Darwin rannsóknarstöðina þar sem þeir ala upp skjaldbökur og igúönur þar til þær eru nógu stórar til að verða ekki étnar og þá er þeim sleppt út í (réttu) náttúruna. Þar hittum við líka Einmana Einar (Lonesome George).
Strax fyrsta daginn fórum við í land á Seymore eyju að skoða bláfættar súlur (boobies) og freigátufugla. Kreisí! Annars eru dagarnir þannig að það eru oftast tvær lendingar á dag og eitt snorkl, stundum tvö, sjórinn er pínukaldur (23-26 C). Fólkið um borð er ágætt, flestir með næga peninga milli handanna. Þjónustan er góð, t.d. fær kvenfólk alltaf matinn sinn á undan karlpeningnum, óbrjótanleg regla hér á Galapagos virðist vera. Og það er búið um rúmið okkar tvisvar á dag, fyrir og eftir lúrinn sko. Handklæðin eru brotin saman á mismunandi hátt á hverjum degi og í gær var búið að búa til skjaldböku úr handklæðinu okkar.
Erum búin að sjá fullt af fuglum, eðlum og nokkrar skjaldbökur, já og mörgæsir. Höldum í vonina með að sjá kannski eldgos sem er í gangi hérna.
Hérna eru síðan nokkrar myndir í engri sérstakri röð.
Heyrumst um mánaðarmótin.

Skrifaði: Kári & Inga Hrund

 

Quito, 11.05.2005 klukkan 19:53
Galapagos framundan!


Jæja, jæja þá!
Við erum sumsé á leiðinni til Galapagos eyjanna á morgun í talsvert langa siglingu. Þessi ferð er eins og sumir líklega vita ástæðan fyrir því að við fórum í þetta ferðalag til að byrja með og þessvegna vildum við ekki láta okkur nægja minna en tveggja vikna ferð. Netsamband er að okkur skilst af skornum skammti úti á reginhafi en vonandi finnum við okkur eitthvað til dundurs samt sem áður.
Við komum þá ekki til með að skrifa neitt hérna á síðuna fyrr en í fyrsta lagi að mig minnir laugardaginn 28. maí en þá munum við smám saman byrja að koma inn myndum og lýsingum úr siglingunni og þá kannski líka frá suðurskautslandssiglingunni með tíð og tíma. Ég læt þá kannski verða af því að setja inn einhverjar myndir í meiri upplausn en þær sem skeytum inn í textann, enda verða tækifærin til að taka áhugaverðar myndir óteljandi næstu vikur, eins og þau voru í upphafi ferðar fyrir sunnan.
Við erum full eftirvæntingar og þó að það hafi ekki þótt eftirsóknarvert að leggja í siglingar á föstudeginum þrettánda erum við hvergi bangin. Eftir siglinguna er síðan ekki annað eftir en að fara heim, sem þó kemur til með að taka frá 29. maí til 3 júní þegar við loksins komum heim (og ekki seinna vænna þó að við höfum haft það alveg hreint ágætt hérna úti).
Heyrumst um mánaðarmótin!

Skrifaði: Kári