það er svo margt í skólanum mínum sem ég ekki skil.
- ég skil ekki mötuneytið mitt. það er eldhús með öllu tilheyrandi, áhöldum og mat, en enginn starfsmaður. þar er sjálfsafgreiðsla og þú borgar bara í e-n bauk ef þér sýnist svo þegar þú hefur smurt samlokuna þína. næstum alltaf þegar ég kem þangað þá eru risavaxnir tölvunördar að baka brauð eða kökur (sem er frekar skondin sjón) og ég veit aldrei til hvers. má ég bara fá mér köku eða? skil þetta ekki.
- ég skil ekki skrítna strákinn sem er með mér billedbehandling og mönstergendkendelse. á milli tíma þá fer hann fyrir framan allan bekkinn í stóra fyrirlestrasalnum með prikin sín þrjú og leikur sér að því að halda einu þeirra á lofti með hinum tveimur. veit ekki hvað þetta heitir en þetta er e-s konar sirkusatriði. veit ekki hvers vegna hann finnur sig knúinn til að vera með þetta show. i dag var hann líka extra hress með 3 bolta til að halda á lofti og kastaði þeim öllum í einu til kennarans, sem btw. er fjörgamall, og hann átti að grípa þá. auðvitað gat hann það ekkert! þetta er kannski e-r ofvirkni í stráknum sem lýsir sér svona. ég skil það a.m.k. ekki.
- svo skil ég ekki alltaf það sem kennarinn segir því hann talar útlensku.
já, það er svo margt.