miðvikudagur, október 27, 2004
við erum að fara í partí á föstudaginn... temapartí. júlía er ein af þeim sem standa fyrir gleðinni og bauð okkur í herlegheitin. "it's mandatory to wear a dead person's costume" eins og segir í boðskortinu. það á sem sagt að vera í gervi einhverrar frægrar persónu... dauðrar. persónan má vera lífs eða liðin í raunveruleikanum. gaman að'essu. e-jar hugmyndir að gervum?
mánudagur, október 25, 2004
góður dagur í dag.
í dag hitti ég mömmu, pabba, hrafnhildi og guðnýju ösp á íslandi og elskuna mína hann stefán í danmörku.
í dag fórum við stebbi á sticks & sushi sem var mergjað.
í dag fór í ég ymer, búðina mína, til að athuga hvort marokkó-skórnir væru komnir. þeir voru komnir en ekkert par í minni stærð. christina var á svo miklum bömmer yfir þessu að hún stakk 200 dkr í vasann á mér og sagði mér að fara í búð keppinautarins sem selur sömu skóna, aðeins dýrari (þessum 200 dkr). ég tölti mér yfir til marokkóska kaupmannsins og valdi mér par... fallegt turkish litað par. ég ætla að fara á morgun og knúsa christinu og sýna henni skóna.
í dag fékk ég brauð með mysingnum hennar mömmu sem hún bjó til í gær og sendi með mér heim. það eru orðin ansi mörg ár síðan mamma gerði mysing.
í kvöld ætla ég að horfa á ørnen, danskan kriminal odissey, svar danska ríkissjónvarpsins við 24.
...svo ætla ég að knúsa stebba því ég er búin að sakna hans svo mikið :)
kys og kram.

laugardagur, október 23, 2004
Ég er búinn að bölva tónlistarsmekk Dana ansi oft og það staðfestist hér með að frændur okkar Norðmenn og Svíar eru líka örgustu píkupopparar. Nordic Music Awards er í sjónvarpinu núna og það er búið að velja bestu alþjóðlegu karlkyns og kvenkyns tónlistarmennina. Og það voru Usher og Anastacia sem unnu. Og til að bæta gráu ofan á svart var Westlife valin besta alþjóðlega hljómsveitin. Yfir mig hneykslaður.
föstudagur, október 22, 2004
Jæja, Rut farin til Íslands og ég orðinn grasekill yfir helgina. Hef ekki hugmynd hvað ég á af mér að gera. Upphaflega ætlaði ég að læra duglega um helgina en ég er ekki eins spenntur fyrir því núna. Kannski ég reyni að rífa mig á fætur þegar seinni Frasier þátturinn er búinn. Vill einhver vera memm?
miðvikudagur, október 20, 2004
tilkynnist hér með að ég verð á íslandinu góða um komandi helgi. flýg út fimmtudagskvöldið og heim mánudagsmorguninn (eða öfugt... heim og út). þetta verður vinnuferð en ég verð í fríi á kvöldin. geri ráð fyrir miklu knúsi til guddu litlu.
þriðjudagur, október 19, 2004
eg, stebbi og julia erum a leidinni til berlinar 9.-12. november ad hitta thorhildi thysku. stefnan var i upphafi tekin a franz ferdinand tonleika og med tad i huga pontudum vid stebbi flug fyrir okkur thrju med easyjet, julia skyldi sja um midana. 0,03 nanosekundum eftir ad vid stadfestum kaup a thremur flugmidum til berlinar tilkynnti julia okkur ad uppselt vaeri a tonleikana. juju, til berlinar skyldum vid fara thvi farmidarnir voru stadfestir. thad er nu margt skemmtilegt haegt ad gera i berlin... thar er t.d. saersti dyragardur evropu og thadan er scooter. eg get skylid ad eg geri svona fljotfaernis mistok, en stebbi, stebbi er ekki vanur ad kludra hlutunum svona kjanalega. eg og stebbi hlogum datt ad thessum klaufaskap en julia var lengur ad taka vid ser.
en allt er gott sem endar vel. vid fundum adra sidu sem seldi mida a tonleikana og thar var sko ekki uppselt. julia pantadi a.m.k. 3 mida... annad hvort thad eda 6 mida (thyskan er svo skemmtileg). vid erum sem sagt a leidinni til berlinar og a franz ferdinand. kikjum jafnvel i dyragardinn og a teknokvold fyrst vid erum tharna.
auf wiedersehen.

mánudagur, október 18, 2004
það gerðist doldið skrítið áðan. ég sat í fyrirlestri um performance monitoring þegar ég fékk allt í einu sjúklega löngun í ostru með sítrónu! ég dreif mig heim á hjólinu í grenjandi rigningu og uppgötvaði þá að mig langaði heldur í sushi. er hrár fiskur í miklu magni nokkuð hættulegur? spurning hvað stefán segir... hvað ég get platað hann í.
sunnudagur, október 17, 2004
hentum mömmu og pabba í lestina áðan, þau eru á heimleið. það var ekkert smá gaman að hafa þau. við borðuðum og borðuðum og borðuðum... á meðan við vorum að borða þá ákváðum við hvað við skyldum borða næst... við vorum mjög vel haldin.
bragðlaukar mínir eru í blússandi þroska um þessar mundir eins og ég hef áður sagt. á föstudaginn fórum við á idu davidsen þar sem ég borðaði eitt og hálft smörrebröd og þótti mjög gott. en það sem mér þykir nú samt merkilegast er að þá um kvöldið eldaði pabbi á hellunum okkar tveimur og var með smakk á ostrum, á milli for- og aðalréttar, beint úr skelinni. ég saup á minni skel með bestu lyst og renndi gúmmelaðinu niður með glasi af freyðivíni. sérdeilis gott alveg hreint... eða það þótti okkur pabba a.m.k. en mamma og stefán voru ekki eins hrifin.
ég skora á alla að smakka ostrur og að hætta að kalla mig matargikk!

fimmtudagur, október 14, 2004
mamma og pabbi komu á þriðjudaginn með ógnarstóran poka af íslensku nammi frá henni elskulegu systur minni. hún fékk víst e-ð samviskubit þegar við skömmuðum hana fyrir að hafa ekki komið með íslenskt nammi þegar hún kom í heimsókn. ég vigtaði pokann og hann var rétt um 3 kíló... kúlusúkk, draumar, þristar, tromp, lakkrís... 3 kíló!!! hún er nú ekki alveg í lagi. en það fylgdu skýr fyrirmæli þess efnis að hlynur skyldi nú fá e-ð af þessu. hlynur ef þú ætlar að ná e-ju af slikkinu þá þarftu að drífa þig á norður sjógötu sem allra fyrst!
annars er búið að vera rosa gaman hjá okkur með mömmu og pabba. við fórum í gær á sticks & sushi og fengum alveg mergjað sushi. ég þreytist sko ekkert á því að segja frá því hve mikið bragðlaukarnir mínir hafa þroskast.
...mergjað sushi!

þriðjudagur, október 12, 2004
Ég veit þið trúið þessu ekki en íbúðin okkar lítur nú út eins og í Ajax auglýsingu. Ég hef verið eins og hreingerningar hvirfilbylur í nær allan dag. Ég skora á sænska heilbrigðiseftirlitið að reyna að finna rykörðu hérna.
Annars er allt gott að frétta, við í haustfríi og tengdó að fara að detta inn um dyrnar. Rut fór að sækja. Það ætla allir sem koma hingað að taka leigbíl til okkar! Veto á leigubílana, lest og labb er eina sem þarf.
Ég var að skila af mér verkefni í rafsegulfræðikúrsinum mínum. Ef svo undarlega vildi til að einhver hefði áhuga má hann kíkja hingað. Síðan verður allt heila klabbið geymt hér.

hlynur kíkti til okkar í gærkvöld í grjónagraut. í kaupbæti fékk hann klippingu á hárgreiðslustofu rutar. ég klippti hann... tja... já bara eins og stebba... ég kann nú bara þessa einu klippingu. en ég held að hlynur hafi verið ánægður með afraksturinn... hann fékk jú að sötra á öli á meðan á öllu þessu stóð. strákar eru svo einfaldir!
mánudagur, október 11, 2004
hér er orðið kalt, rosalega kalt. við kveiktum reyndar fyrst á ofnunum í fyrradag, en það varð strax alveg ofboðslega kalt. ég pantaði ískaffi á kaffihúsinu okkar í kuldanum og barþjónninn trúði því ekki, útbjó handa mér írskt kaffi, með viskíinu og öllu. "nej, jeg har bestillt en ISkaffe, ikke irsk kaffe". myndi maður ekki líka panta "irish coffee" ef svo væri?
mamma og pabbi koma á morgun og við ætlum að taka á móti þeim við hliðið á kastrup. þau ætla að koma með tösku sem við pökkuðum í í (???) haust, en hún inniheldur m.a. úlpuna mína góðu og trefil, mikið verður ljúft að fá þann hlífðarfatnað. svo frétti ég líka af e-jum óvæntum glaðningi sem verður með í för. náði ekki að veiða neitt upp úr liðinu. spurði mömmu hvort hægt væri að borða hann og hún játti því... ég gruna hana þó um blöff.

laugardagur, október 09, 2004
nýi barði er nú farinn heim.
ég ætlaði að hella mér í lærdóm og vinnu, ákvað að kíkja örstutt á mbl fyrst. á forsíðunni var stjörnuspá dagsins fyrir nautið:
Naut
Nú er rétt að snúa sér að verkefnum í vinnunni, sem krefjast einbeitingar, nákvæmni og rannsókna. Upplagið er gott þessa stundina.
trúi ekki á svona, en þetta eru bara svo skýr skilaboð!

þegar ég bjó í danmörku hér um árið lærði ég að borða kotasælu og dijon sinnep. það sem af er liðið þessari köbendvöl okkar hef ég lært að drekka rauðvín og borða sushi. pabbi, trúirðu þessu... ég er að þroskast!
ég, nebbi og barði vorum að koma inn eftir afskaplega notalega stund á sticks & sushi (sem er einmitt bara í götunni okkar). ég var ekkert sérlega lipur með prjónana en sótti á eftir því sem leið á kvöldið. það þurfti oftar en ekki að leggja bitana upp fyrir mig þ.a. erfitt varð að klúðra þessu. komum svo við á barbarellah (í næstu götu) og fengum okkur kaffi og kokteil. erum að taka netta koju núna. notalegt!
annars byrjaði ég í efterårsferie í gær. maður hefði haldið að framundan væri hin rólegasta vika, en svo verður því miður ekki... meira en nóg að gera í verkefnavinnu. ætla að reyna að vera dugleg þangað til á þriðjudaginn, en þá koma elskulegu mamma mín og pabbi í heimsókn... ég er svooo spennt!

miðvikudagur, október 06, 2004
ég hef aldrei farið í sumarbúðir, en ég hef upplifað slíka stemmningu síðustu nætur. við höfum sofið fjögur í íbúðinni okkar litlu síðustu daga og áður en við förum að sofa eftir að hafa slökkt ljósin, þá spjöllum við, hvert úr sínu rúmi... viss um að sumarbúðir séu svona. þórhildur fór svo í gær morgun, þ.a. nú er það bara barði sem hrýtur á stofugólfinu okkar.
vorum að koma úr búðinni þar sem við keyptum rauðvínsflösku, brie og þriggja laga ís kl. 21:30 á miðvikudagskvöldi... allt þetta á aðeins 40 DKR... rennur allt saman mjög ljúflega niður yfir simpson þætti. það er gott að búa í kaupmannahöfn.
nú eru komnar inn myndir frá heimsókn hrafnhildar, barða og þórhildar... sjá hér. langt síðan þetta hefur gerst!

mánudagur, október 04, 2004
barði: "amma mín er dönsk"
rut: "já er það?"
barði: "já eða sko... hún er dönskukennari"
rut: "hahahahahahahah"
rut: "já er það?"
barði: "já eða sko... hún er dönskukennari"
rut: "hahahahahahahah"
Við erum nýkomin heim úr mat hjá Júlíu, nýju vinkonu okkar sem reddaði okkur íbúðinni okkar hálfpartinn. Með góðri hjálp frá Þórhildi sko. Það var voða næs hjá henni og Steinunni. Ég og Rut vorum líka að kaupa okkur miða á Kings of Leon tónleika sem verða á Vega 4. des. Ætlum að fara með Júlíu. Svo eru uppi hugmyndir um að skella sér til Berlínar á Franz Ferdinand tónleika í nóvember. Margt vitlausara en það. Já já, það er svo margt. Og jú það gengur prýðilega í skólanum og Rut biður að heilsa. Góða nótt.