sunnudagur, desember 19, 2004

stefán minn átti afmæli í gær... tillykke min skat!

að því tilefni (og heimsóknar þórhildar og tóbíasar) buðum við fólki heim á föstudagskvöldið. þegar mest var: hlynur, júlía, dagný, ómar, ágúst, þórhildur, tóbías, ari, þráinn, katrín, stebbi og ég... 12 manns á 35 fermetrum, samtals 2.92 fermetrar á hvern rass. og fór svona skrambi vel um okkur. það voru ekki sæti fyrir alla þ.a. stebbi brá á það ráð að þegar hann sá e-n vandræðast vegna sætisleysis, bauð hann þeim og hinum sama upp í dans...

ég setti af stað leikinn góða sem ég lærði á julefrokost stúdentahússins, þar sem einn syngur með head phones og hinir eiga að reyna að syngja með réttu lagi. vakti þetta mikla lukku. mörg eftirminnileg atriði... dettur fyrst í hug þegar ómar söng luftgítar, líkt og sjón hér forðum, og stebbi var fyrir e-jar skrítnar sakir búinn að sannfæra hópinn um að hann væri að blöffa og giskaði því enginn á rétta lagið. ómar söng til enda og skildi ekki hvers vegna enginn fattaði. "neeeeei, við erum ekki alveg að fatta...".

júlía missti síðar veskið sitt fram af svölunum (af 6. sal... 7. hæð). hún hljóp niður á götu og baðaði í sífellu út höndunum í leit sinni að veskinu. maður nokkur hjálpaði henni við leitina en gafst síðar upp. ég fylgdist með þessum litla depli í dauðaleit sinni að veskinu, hlaupandi fram og til baka með hendur á lofti, af svölum mínum í háloftunum, í hláturskasti. júlía sneri aftur upp og fann þá veskið sitt á gólfinu í ganginum ;)

það steingleymdu allir að fara í bæinn þetta kvöld. eftir þrjá kassa af bjór, heila flösku af bombay gini, hálfa flösku af single malt viskíi, hvítvínsflösku og 6 klukkustundir í kareokí-leiknum, þá slúttaði stebbi festinni og smalaði liðinu út... klukkan 6. fyrir fram ætluðu allir að taka því rólega... stebbi og ómar ennþá í prófum, júlía átti að mæta til vinnu kl. 10 morguninn eftir, dagný þurfti að vera hress til að undirbúa heimför og ágúst átti flug á hádegi... "mr. ágústsson, your flight is departing... this is the final call for mr. ágústsson"... and then he had to buy some getnaðarvörn!

nú er allt fallið aftur í ljúfa löð, þórhildur og tóbías flugu til íslands í gær, stebbi er að læra fyrir prófið sitt og ég að horfa á aldargamla mynd með shirley temple. á þriðjudaginn fljúgum við svo heim.

fimmtudagur, desember 16, 2004

Aumingja litla hafmeyjan

Ekki nóg með að hún hafi verið afhöfðuð tvisvar heldur var hún núna klædd í einhvern kufl!


miðvikudagur, desember 15, 2004

í gærkvöldi, á moose, töluðum við mikið um spælegg og spaghetti. júlía gerði þess vegna spaghetti í hádeginu í dag... ég var með spælegg í kvöldmatinn. sniðugt svona spælegg, allt of langt síðan síðast. stebbi vildi setja salt og pipar á spæleggið, ég vildi setja sykur... en ekki hvað?!?!

matreiðslan var þannig að ég setti spæleggið á smurt brauð og hafði með því steikt beikon og steikta tómata. þetta er í fyrsta skiptið sem ég steiki beikon - og það síðasta. oooojjjjj. fitumassi hoppandi og skoppandi í fitupolli á pönnu. núna lykta ég eins og beikon. held ég muni ekki borða meira beikon um ævina.

ég hlakka til að komast til mömmu í alvöru mat.

mánudagur, desember 13, 2004

ansi hreint skemmtilegur siður þeirra dana að halda julefrokost. ég sótti einn slíkan á laugardaginn sem leið... og þvílíka gleðin. danir eru svo fyndnir með svo margt (eins og t.d. hin sívinsælu þemapartí). til að byrja með sátum við bara við barinn og drukkum okkar danska öl og spjölluðum. ég kynnti m.a. stelpu og strák fyrir hvoru öðru, sem bæði voru frá hamborg og gátu talað saman reiprennandi á 4 mismunandi tungumálum... þýsku, ensku, dönsku og rússnesku. ég og hlynur endurtókum bara í sífellu "vodka, vodka". en það er önnur saga.

eftir heitt kakó með rommi (ojjj) var okkur boðið að ganga til borðs. á íslandi hefði hópur fólks safnast saman og reynt að sitja við sama borð... það er alltaf svo gott og traust að sitja með fólki sem maður þekkir fyrir. svona eru danirnir ekki. stelpunum var fyrst öllum boðið að koma upp á svið. þá strax leist mér ekkert á blikuna, verandi hinn týpíski feimni íslendingur. þegar þangað var komið vorum við beðin að setja annan skóinn okkar ofan í svartan ruslapoka. þetta gerði ég, ekki þó með bros á vör, þar sem ég var að senda stígvélið mitt fína í táfýlu- og skósúpu. svo skyldum við fá okkur sæti e-s staðar við borð, en þó þannig að það var eitt autt sæti á milli hverra tveggja stelpna. svo var strákunum boðið að koma upp á svið að draga skó upp úr ruslapokanum og þurfti sá að sitja vinstra megin við þá sem átti viðkomandi skó. "sniðugt", segi ég nú bara!

skófélagi minn var hinn danski allan, en við hlynur erum sammála um það að hann er danska útgáfan af honum kalla sem var með mér í mr. við vorum samtals 8 við okkar borð og borðið okkar hét "passionsfrugterne" (það varð náttúrulega að koma að e-s konar þema... ávaxtaþema). til þess að koma nöfnum allra á hreint var að sjálfsögðu settur af stað leikur - en ekki hvað. álaborgar ákavítis flaskan var opnað og hverjum og einum skenkt. svo byrjuðum við... "jeg hedder rut"... "hej rut"... og ég skálaði í vítinu. svona gekk þetta hringinn. "sniðugt", segi ég aftur!

svo var það ansi oft um kvöldið þar sem e-r einn í salnum lyfti staupi af ákavítinu og hrópaði "skååååååååååål" og restin tók undir og stútaði einu staupi. að sjálfsögðu var þambaður danskur bjór samferða þessu. ástandið á liðinu varð fljótt ansi skrautlegt.

að sjálfsögðu voru leikir á meðan á borðhaldinu stóð. hvert borð fékk lista með fimm spurningum sem við áttum að svara á meðan á forréttinum stóð. borð yfirdómarans vann. mörgum þótti það vafasamt og gerðu skriflegar athugasemdir við það... sem er aftur mjög danskt. einnig átti hvert borð að semja limru. hvað er limra? kvæði þar sem 1., 2. og 5. lína rímar saman og 3. og 4. lína ríma saman. þetta læra danir greinilega ekki í skóla því enginn kom með neitt sem líktist limru. eitt borð var með tveggja lína erinda kvæðabálk þar sem allt rímaði við "onani" (sjálfsróun)... sem vakti mikla lukku. okkar "limra" hafði fjórar línur þar sem rímið var lárétt, ekki lóðrétt. annars komst ég að því þarna hversu léleg ég er að ríma á dönsku, eins og ég er ótrúlega góð í því á íslensku... well.

annars var síðasti leikurinn laaaaang skemmtilegastur og ég trúði ekki hvers vegna ég hefði aldrei heyrt um þennan leik fyrr, því einfaldur er hann. sko... til að byrja með var e-r úr salnum valinn af handahófi og beðinn að koma upp á svið. hann fékk svo micro phone og head phone. í head phone-inn var spilað e-ð lag sem enginn heyrði, nema sá og hinn sami, og átti hann að syngja með laginu. svo var keppt á milli borða í salnum... hvaða borð varð fyrst til þess að standa á fætur og syngja hátt og snjallt með þeim sem stóð uppi á sviði. lagið varð að vera hið rétta. þegar e-rt borð hafði staðið á fætur með rétt lag þá var tónlistinni hleypt út um hátalarana og allir sungu með hástöfum. sigurborðið fékk svo að velja næsta söngvara úr salnum. ég var í hláturskasti allan tímann. mæli með þessum leik í næsta áramóta- eða nýárspartí. vel hægt að snúa honum upp í einstaklingskeppni. svo líkist hann svo mjög leiknum þar sem pelle varð sigurvegari :)

ég yfirgaf partíið þegar ég sá að alex var orðinn flaming... berfættur og á hlýrabol, mikke menntaskólakennari "sofnaði", og anna var orðin bæjari... var í sleik við samstarfskonu sína.

það var með bros á vör sem ég fór að sofa þetta kvöldið og með verk í höfði sem ég vaknaði daginn eftir.

laugardagur, desember 11, 2004

Ég hélt alltaf að ég væri Hr. Kitli.
nonsense
You're Mr. Nonsense! :P



Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla

föstudagur, desember 10, 2004

silly
You're Mr. Silly! Hurrah! :D



Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla

miðvikudagur, desember 08, 2004

Buuuuuuuuu :( Ég var búinn að hlakka mikið til að fara í seinasta prófið mitt, munnlegt í Remote Sensing, þann 17. des og eiga þá frí á afmælisdaginn. En helvítis prófdómarinn getur ekki verið nema til hádegis svo að ég verð að taka prófið 20. des og verð því enn einu sinni að læra á afmælisdaginn minn. Þetta hlýtur að vera einhvers konar samsæri!
Vinsælir í Köben

Þar seinustu helgi var haldið kallakvöld hjá Hlyni. Mættir voru ég, Hlynur, Hjörtur, Ágúst grasekill og Gunni verðandi bauni. Eftir að hafa etið vel blóðuga nautalund og skolað því niður með dýrindis rauðvíni skelltum við okkur í bæinn. Og danska kvenfólkið gat sko ekki látið okkur í friði, alveg sama hvað Hjölli reyndi að fá þær til að skilja að hann væri á föstu og ætti son. Ein var meira að segja svo ágeng að hún tók af okkur mynd og setti á netið! Þessar bauna gellur maar.

þriðjudagur, desember 07, 2004

það voru skiptar skoðanir um quiz-ið mitt góða. ég viðurkenni reyndar að sumar spurningarnar voru kannski tvíræðar (fyrir suma)... en samt, í mínu hjarta kom eitt, og bara eitt, svar til greina í hverri spurningu (ég yrði ábyggilega strangur og leiðinlegur kennari :p).

úrslit quiz-ins má sjá hér...



það voru nokkrir fúlir, vildu vera ofar... mamma var sérstaklega sár yfir þessu, þórhildur einnig. sumir kunna þó að bjarga sér og svindluðu hreinlega... nefni þó engin nöfn í þessu samhengi. það var aðeins einn sem svaraði öllu rétt og það var hann stefán minn, en ekki hver. hann tók prófið alveg sjálfur, langt frá mér og mínum, og stóð sig með mikilli prýði. stor 13 tal! það sem mér þótti helst koma á óvart, var það hve vel júlía þekkir mig. hún er nýjasta vinkona mín og er vön að segja frá sömu hlutunum tvisvar. svo nottla líka að hún móðir mín hafi ekki trónað á toppnum með honum kyssa mínum. tóta var líka skemmtilegur hástökkvari, situr mjög ofarlega, ásamt honum hlyn.

annars er það að frétta af hnakknum mínum að í morgun var hann alveg þurr en samt sem áður var ég rassblaut eftir ferðina... undir hægri rasskinninni.

sunnudagur, desember 05, 2004

hanna kristín bjó til svo sniðugt quiz að ég varð bara að apa þetta eftir henni.
hver þekkir mig best?

taka quiz!
skoða skor!

föstudagur, desember 03, 2004

pokkers!
elektrikeren dinglaði kl. 8:05 í morgun til að laga dyrasímann. þess vegna er ég komin á fætur, eldhress, og á leiðinni að demba mér í heimavinnu... dugleg. ég var mjög þreytt áðan þegar ég las póstinn minn og fékk tilkynningu um það að hún franziska hin þýska (vinnur með mér á studenterhuset) ætti afmæli í dag... sendi henni afmælis-email.

í gær skráði ég mig loksins á julfrokost í stúdentahúsinu. danirnir eru svo stressaðir. síðast þegar ég mætti var öllum svo umhugað um það að ég mætti á þennan blessaða julefrokost og yrði nú að drífa mig að skrá mig. þetta var 25. nóvember, lokafrestur til srkáningar er 8. desember. ég meina, nægur tími krakkar mínir! eníveis, þá skráði ég mig í gær, nokkuð tímanlega þótti mér. stelpan í skráningunni spurði mig hvort ég vildi taka þátt í skemmtiatriði... sko svona stelpuskemmtiatriði sem strákarnir mættu ekki vita af. atriðið er að bera hvíta kirtla, geislabaug og kerti og syngja lúsíusöngva. hresst? jújú, voða fallegt og jólalegt, en ég var e-n veginn ekki til í að taka þátt í svona nokkru. mér leiðast búningar, og að syngja í kór... hefur alltaf þótt það. "ég myndi ekki fara í kór þótt það væri beri karlakórinn" eins og faunan mín segir.

elektrikeren er enn hér... ætla að læra þangað deitið okkar hlyns byrjar, klukkan 10.

fimmtudagur, desember 02, 2004

sótti nýtt msn til að geta séð júlíu í nýja webcaminu sínu...

júlía sendir jólakveðju...



komin í gírinn...



dottin í það...



hissa yfir afsökuninni "hópvinna kl. 10 í fyrramálið", þar sem marta á að halda fyrirlestur á morgun og hrund í vinnu kl. 7:30...


herdís er ein af mínum... já, sumir myndu segja biluðustu vinkonum. hún er nú á leiðinni til lapplands þar sem hún ætlar að vinna það sem eftir er vetrar, sem hundasleðaleiðsögumaður!

herdís mín, ég dýrka þig fyrir það sem þú ert... luv ya.
það er e-ð að hnakknum mínum.
til að forðast rassbleytu þá reyni ég alltaf að þurrka hann rosa vel áður en ég sest. e-rra hluta vegna virðist það ekki skipta nokkru máli því ég verð alltaf rassblaut... eða sko blaut undir hægri rasskinninni. það er afar hvimleitt að vera alltaf rassblaut í skólanum og þurfa að slæda meðfram veggjum, með rassinn að, og sitja á honum blautum allan daginn. þetta var sérstaklega leiðinlegt í dag þar sem ég ætlaði að spranga um með nýja trefilinn og monta mig, sem er önnur saga...

...eftir bröns í gær með dagnýju og hlyn, þá gerðum við stutt stopp í búðinni okkar dagnýjar, langt síðan við höfðum heilsað upp á þær christine og marie. christine var einmitt á staðnum þegar við komum og bað okkur að hinkra aðeins á meðan hún stykki upp í íbúðina sína til að sækja gjöf... handa mér! eftir stutta stund stekkur hún niður í búðarholuna með trefil sem hún gerði handa mér. hann er svoooo fallegur... strax orðinn uppáhalds! mér fannst þó fullmikið að þiggja hann endurgjaldslaust (enn í fersku minni þegar hún stakk 200 dkr í vasa minn og sendi mig að kaupa skó í annarri búð), þ.a. ég heimtaði að kaupa hann af henni. mikill barningur hófst sem endaði með því að ég gaf henni knús og 50 dkr sem hún sagðist ætla að kaupa lunch fyrir... allir glaðir :)

allir í ymer dress!!!