mánudagur, janúar 31, 2005
við höfum tekið að okkur að halda heimili tvítugrar stúlku (sem við kjósum að kalla dímítrí) fínu á meðan hún skiptinemast í kaupmannahöfn og lærir að standa á eigin fótum. við heimsækjum skvísuna tvisvar sinnum í viku og fáum borgaða formúgu fyrir. fjölskylda stelpunnar syndir í seðlum og hefur hún alist upp með þjóna og kokka á heimili sínu. stúlkan kann ekki, já kann ekki að taka til. þar komum við til sögunnar, aðkeypta vinnuaflið, sem tekur til, þrífur og gengur frá fötunum hennar. þetta jú er allt liður í því að læra að standa á eigin fótum :) þaðan var ég einmitt að koma rétt í þessu, og stúlkan hefur, á e-n óskiljanlegan hátt, náð nýjum hæðum í draslaríi. aldrei séð annað eins ástand. en mér finnst þetta alltaf jafnfyndið. ég er jafnan í hláturskasti á meðan ég brýt saman fötin hennar og set inn í skáp, sem ég veit, bæ-ðe-vei, ekkert hvert eiga að fara...
sunnudagur, janúar 30, 2005
nú nálgast febrúar óðum.
í gær, fyrir hádegi, töltum við kyssi niður í bæ. við stoppuðum á bagel+ í bröns. það er alltaf voða lítið að gera á þessum stað, en alveg frábærar beiglur. eigandinn mundi greinilega ekki eftir okkur því hann spurði okkur nákvæmlega sömu spurninga og síðast þegar við komum. hvaðan eruð þið? ísland, já það er frábær fótboltamaður frá íslandi, gudjohnsen, kannist þið við hann? jújú, örlítið...
eftir laxabeyglu og "besta ískaffi kaupmannahafnar", eins og kallinn sagði (eins og síðast þegar við komum), þá héldum við á ljósmyndasýningu nemenda fatamorgana, ljósmyndunarskóla. sumt var mjög flott, en fleira var mjög ljótt... svona í stuttu máli :)
svo fórum við og keyptum fótboltaskó handa kyssa. hann er svo ánægður með þá að hann hefur ekki farið úr þeim síðan við komum heim.
fengum svo óvænta heimsókn í gærdag frá rúnari sem er í ekki-svo-stuttri heimsókn í kaupmannahöfn. ótrúlega gaman að því.

laugardagur, janúar 29, 2005
kryddi er að gera sniðuga hluti í suður ameríku... linkur á hann.
fimmtudagur, janúar 27, 2005
Gítarsólókeppni í Ópinu í Ríkissjónvarpinu seinasta miðvikudag og Steinar lille bror var náttúrulega langflottastur. Tjékkid.
þriðjudagur, janúar 25, 2005
U2 í kaupmannahöfn!!!
U2 munu spila á parken 31. júlí 2005. þú getur giskað hvort ég verði á svæðinu...

hrafnhildur systir hringdi í mig í gær. hún var segir mér m.a. frá líkamsræktinni sem hún og þórdís vinkona hennar eru byrjaðar í, þar sem þær hafa ráðið sér einkaþjálfara sem þær hitta 5 sinnum í viku. hrafnhildur segir mér að einkaþjálfari þeirra hafi einu sinni verið herra ísland. "nú" segi ég, "hvað heitir hann?". "þór" segir hún. "jósefsson?" spyr ég, og fæ hláturskast. hrafnhildur er voða hissa á því að allir nema þær þórdís viti hver þór jósefsson er, og ennþá meira hissa að allir skuli fá hláturskast þegar hún segi frá þessu. "hvað er svona fyndið við þór jósefsson?" spyr hún að lokum. hvernig svarar maður eiginlega svona spurningu???
sunnudagur, janúar 23, 2005
Hildur stóra systir á afmæli í dag. Innilega til hamingju með það frá mér og Rut. Þeir sem eru glöggir hafa kannski tekið eftir að það er líka Eyja-gos-afmæli í dag. Merkilegur dagur.
laugardagur, janúar 22, 2005
pis!
ég var að fá tilkynningu frá jógastöðinni þess efnis að það sé fullt í námskeiðið og að ég sé komin á biðlista. þetta er ekki samkvæmt nýja-rut-planinu!

föstudagur, janúar 21, 2005
í gær valdi ég kúrsa fyrir næstu önn. ég fór frá því að finnast allt leiðinlegt í að velja að lokum fjóra mjög spennandi kúrsa. einn kúrsanna er í öðrum skóla, skólanum hans hjölla sem er víst eins og geimskip (sko skólinn, ekki hjölli). það verður ótrúlega spennandi.
svo er mín búin að skrá sig í jóga sem hefst í byrjun febrúar. það verður ný rut sem lítur dagsins ljós í febrúar. þá verð ég búin með þessa mjög svo strembnu önn, byrjuð í jóga, fer að sofa fyrir miðnætti, vakna fyrir 9 og hætt að horfa á serie zonen á tv2 (the cosby show, roseanne, ally mcbeal, beverly hills 90210, dharma & greg). þetta verður febrúarheitið mitt. alveg skelfilegt að skipta skólaárinu eins og gert er hér, ágúst - janúar og febrúar - júní, maður er neyddur til að taka ruslið frá haustönninni með sér á nýtt ár.
nýtt upphaf...
1. janúar 2005. 1. febrúar 2005.
þá er bara að klára próf og verkefni og undirbúa sig fyrir stabílismann ;)

þriðjudagur, janúar 18, 2005
Smá pæling. Ég fór út að viðra Rut áðan og á göngu okkar um Sø-in mættum við óteljandi skokkurum og líka öndum. Þá komumst við að því að dönsku endurnar segja "bra bra" alveg eins og þær íslensku. En hvort tala dönsku endurnar íslensku eða íslensku endurnar dönsku? Eða tala þær bara allar sænsku?
mánudagur, janúar 17, 2005
mamma er komin og farin. hún hringdi áðan af kastrup flugvelli, bara til að tilkynna að hún hefði farið út úr lestinni á réttum stað (á flugvellinum, ekki í malmö), fundið tjekkinn-ið og sæti nú inni í fríhöfninni. dugleg hún mamma ;)
það var alveg yndislegt að hafa hana. erum búnar að fara út um allar trissur, skoða búðir og sitja kaffihús. gerðumst m.a.s. menningarlegar og fórum á ljósmyndasýningu í kuldanum í gær.
annars er það af mér að frétta að ég hef nýverið uppgötvað töfra eBay. bauð í forláta skó fyrir helgi, bara svona rétt til að finna rushið. ég varð mjög sár þegar svo e-r hrifsaði þá af mér. held ótrauð áfram og er með tösku í sigtinu sem e-r yfirbauð í gær. en þar sem ég er orðin vön núna, þá ætla ég að hrifsa töskuna af þeim og hinum sama til baka rétt fyrir lokun í kvöld... múhahahaha. í gær náðum við mamma svo í slá á þessu fína uppboði. nú er maður kominn með blod på tanden og nú verður ekki aftur snúið :)

þriðjudagur, janúar 11, 2005
ég á bestu foreldra í heimi!
mamma er að koma til köben á fimmtudaginn. henni þótti svo leiðinlegt að við værum bæði veik í útlöndum að pabbi keypti frímerki á rassinn á henni og ætlar að senda hana til okkar á fimmtudaginn.
þau eru best!

mánudagur, janúar 10, 2005
Okkur að batna.
Rut mældi sig í gær og var alveg hitalaus og ég bara með nokkrar kommur og Rut aftur hitalaus í morgun, 36,8 gráður. Um miðjan dag fór Rut svo út í apótek og þegar hún kom heim fannst henni hún vera orðin doldið slöpp svo hún mældi sig á ný. 36,1 gráða... hmmm eitthvað fannst mér bogið við það en jæja átum kvöldmát og spáðum ekki meira í það. Fyrr en nú að Rut mældi sig aftur, tvisvar, og var með 35,7 og svo 35,6. Nú er ég alveg hættur að botna í þessu. Er ekki líkamshitinn alveg örugglega 37 gráður? Ég sendi hana kannski á sjúkrhús ef hún fer að blána.

á föstudaginn fór ég í apótek fyrir veikan stebba minn (áður en ég lagðist í flensu) til að kaupa hitamæli. ég fór upp að afgreiðslukonunni og bað hana um... já, hvað skyldi hitamælir vera á dönsku? ábyggilega næstum eins og á ensku, "thermometer". danir skilja ekki nema maður setji áherslu á rétt atkvæði og þetta orð hefur 4 atkvæði... úr nógu að velja. "ter-mo-me-ter" segi ég við konuna, set svona "bæði-og" áherslu á öll atkvæðin... allt til jafns... tek bara miss swiss á'etta. "JA! ter-mo-ME-(t)-ER". (nú er ég búin að gleyma menntaskóla hljóðrituninni... þetta er sem sagt sterk áhersla á stóra stafi, hljóði í sviga er sleppt og smá pása sett í stað þess og allt saman sagt með miklum yfirgangi og frekju). auðvitað. en ekki hvernig? "JA! en ter-mo-ME-(t)-ER" svara ég dömunni með sama danska kartöflutón (eða það finnst mér amk... danirnir eru ekki alltaf sammála mér). svona er maður alltaf að læra þó maður sé voða heimskur á meðan :-S
áðan fór ég svo og bað um "pano-DIL"... orðin öllu vön í apóteksbransanum.
já, það er ekki sama hvort maður biður um kanilbröd eða kanilbröd í bakaríi.

sunnudagur, janúar 09, 2005
ég er veik... stebbi er veikur... við erum bæði veik!
þegar ég hef verið veik þá hefur stebbi tekið að sér hlutverk hjúkku og öfugt. núna náum við varla að snýta hvoru öðru, hvað þá að laga te með hunangi... liggjum bara í eymd og volæði. við höfum sko engan tíma fyrir svona slen. 3ja vikna kúrsinn hans stebba orðinn að 2ja vikna kúrsi og prófalestrarplanið mitt farið til fjandans.
öss öss öss.

fimmtudagur, janúar 06, 2005
ég fór áðan með júlíu að skoða jógamiðstöð á köbmagergade. skráðum okkur í prufutíma næsta miðvikudag. nú er stefnan tekin á það að öðlast innri frið... já og allt neðantalið (tekið af vefsíðu www.nata.dk):
eliminates stress
eliminates psychological strain, depression and neurosis
cures many afflictions of the physical body
amplifies memory and mental powers (frábært það)
balances all the structures of the human being
stimulates immunity
induces a deep state of calm and inner peace
opens the path towards wisdom (ekki verra)
frees people from prejudice, inhibitions and limitations (hver hefur ekki þörf á því?
improves the capacity to communicate with others (kannski batnar danskan e-ð við þetta...)
harmonises sexuality (obbobbobb)
activates will -power
amplifies self-confidence
facilitates success and achievement
harmonises the structure of the physical body, eliminating excess weight
strengthens muscles
increases concentration
awakens and amplifies the ability to love (það er gott að elska)
opens people towards genuine spiritual communication with God and the Universe
ég hlýt að verða alveg ótrúlega balönsuð...

miðvikudagur, janúar 05, 2005
svo margir sem gera sniðuga annála ársins 2004. þar sem ég man alls ekki lengra en ár aftur í tímann ákvað ég að setja einn saman á meðan e-ð var eftir í kollinum á mér. það gekk ekki nógu vel, þ.a. ég þurfti að fletta gömlu dagatali, sem ég skrifa inn á viðburði svo ég gleymi þeim ekki, og taka upp úr því. annars var árið 2004 mjög fínt. er samt alveg viss um að hafa gert meira skemmtilegt... man bara ekki eftir því :þ
janúar
byrjaði á lokaverkefni
tannlæknir kl. 10:30 (%&?#)
þorrablót á eyrarbakka
febrúar
stebbi útskrifaðist með b.s. í verkfræði
á fullu í lokaverkefni
mars
fór til akureyrar á bretti í hlíðarfjalli
síðasti kennsludagur í HR
sveitt í lokaverkefni
apríl
sá violent femmes
síðasta próf í HR
var viðstödd fæðingu guðdóttur minnar
að fara yfir um í lokaverkefni
maí
ég varð 24 ára
skilaði b.s. verkefninu mínu
opin kynning á lokaverkefninu
heimsótti ernu í london
sá pixies
guðdóttir mín skírð
júní
útskrifaðist sem tölvunarfræðingur
byrjaði á nýsköpunarsjóðsverkefni
júlí
gekk í fyrsta skiptið á esjuna... fékk harðsperrur
sumarbústaður í skítafelli
vann voða mikið í verkefninu, fékk því engan lit á kroppinn
ágúst
fór á rómeó & júlíu
flutti til kaupmannahafnar
byrjaði í kaupmannahafnarháskóla
september
fékk þráðlaust adsl
byrjaði að "vinna fyrir bjór" á studenterhuset
hrafnhildur og erna í heimsókn
október
barði, þórhildur og m&p í heimsókn
nóvember
lauk fyrsta kúrsinum í framhaldsnáminu
tengdó og hallur í heimsókn
fór í fyrsta skiptið til berlínar
sá franz ferdinand
desember
sam kom í heimsókn
julefrokost á studenterhuset
þórhildur og tóbías í heimsókn
frábært kareoke partí í skókassanum okkar
við stebbi urðum jafnaldrar (stebbi varð 24 ára)
jól á íslandi
apple væddist

fullt af fólki sá kiefer sutherland yfir hátíðarnar á íslandi. ég hefði sko tapað kúlinu hefði ég rekist á hann.
þriðjudagur, janúar 04, 2005
gledilegt nytt ar og takk fyrir thau lidnu.
vid komum heim i gaermorgun eftir 9 tima seinkun a fluginu okkar. fluginu seinkadi vegna bilunar i eldhusi (#$%$#$%) og aukaflugvelin var ad fljuga med adstod til taelands, th.a. madur ma eiginlega ekki vera full. annars hefdi eg frekar vilja sleppa matnum fyrir thad ad komast fyrr heim og sleppa vid thetta naeturbrolt. eniveis...
annars var alveg yndislegt ad vera a islandi, hefdi viljad vera mun lengur. nadi t.d. aldrei ad fa mer devitos pizzu :-s fekk mer tho ss pylsu (thrju stykki), nonnabat, subway, kentucky og sveittan sjoppuborgara med fronskum og kokteilsosu. ja hann er godur islenski skyndibitinn.
annars er thad af okkur ad fretta ad vid erum ad apple-vaedast. fengum sinn hvorn iPodinn i jolagjof (fra hvoru odru) og keyptum okkur svo PowerBook adur en vid forum heim. baldur og hallur voru serstaklega anaegdir med okkur. hver veit nema vid frelsumst eins og their.
eg er ad laera fyrir prof. dynasty er i sjonvarpinu, th.a. eg set profalesturinn a hold i sma stund...